Amnesty fordæmir áform um brottvísunarbúðir utan ESB
Óttast er að réttindi fólks verði fótum troðin í nýjum stöðrum utan Evrópu.
Amnesty International hefur fordæmt áform nokkurra Evrópuríkja um að setja upp brottvísunarstöðvar utan landamæra Evrópusambandsins. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Amnesty á Íslandi, segir hættu á að þar skapist „svarthol fyrir mannréttindabrot“. Hún leggur áherslu á að tryggja verði mannúðlega meðferð allra sem leita verndar.
