Sýn tilkynnti FME um meðferð innherjaupplýsinga
Málið varðar forstjóratíð Heiðars Guðjónssonar og rekstrarspár félagsins.
Fjölmiðlafyrirtækið Sýn hefur tilkynnt Fjármálaeftirlitinu um hugsanlega óeðlilega meðferð innherjaupplýsinga árið 2022. Málið tengist sölu Heiðars Guðjónssonar, fyrrverandi forstjóra, á hlut sínum í félaginu og rekstrarspám sem ekki bárust rétta leið. Fjárfestar sem keyptu hlutinn hafa þegar stefnt Heiðari vegna málsins og krefjast skaðabóta.

