Aukið öryggi vegna hótana gegn ráðamönnum
Lögregla rannsakar hótanir í garð Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra.
Embætti ríkislögreglustjóra hefur hert öryggisráðstafanir í kringum íslenska ráðamenn vegna vaxandi hótana. Meðal annars er rannsakað mál er varðar Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem greindi frá grófum hótunum í garð sín og fjölskyldu sinnar. Lögreglan segir þróunina áhyggjuefni en hótanir gegn opinberum starfsmönnum hafi færst í aukana síðustu ár.
