Tekjuhæsti maður Austurlands opinberaður
Jóhannes Jóhannesson frá Fjarðarbyggð var með tæpar 400 milljónir í árstekjur samkvæmt nýju tekjublaði.
Nýjar upplýsingar úr tekjublaði Heimildarinnar sýna hverjir eru tekjuhæstu Íslendingarnir. Jóhannes Jóhannesson er tekjuhæsti einstaklingurinn á Austurlandi þetta árið með 398 milljónir króna í árstekjur samkvæmt upplýsingum hjá skattinum. Fátt er vitað um Jóhannes annað en að hann er frá Fjarðarbyggð, en hann er í 64. sæti yfir þá efnuðustu á landinu öllu.
Í öðru sæti á Austurlandi er Þorsteinn Kristjánsson, forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins Eskju á Eskifirði, með 358 milljónir króna í árstekjur. Kona vermir þriðja sætið, Jóna Bryndís Eysteinsdóttir, sem rekur meðal annars líkamsræktarstöð ásamt því að vera tengd öðrum fyrirtækjarekstri á Austurlandi.
Í fjórða sætinu er annar starfsmaður Eskju, Páll Snorrason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs fyrirtækisins, með 180 milljónir króna. Sigþór Arnar Halldórsson í Múlaþingi er skráður í fimmta sætinu yfir þá tekjuhæstu á Austurlandi; hann er fæddur árið 1963.


