92 ára og keyrir um á rauðum blæjubíl

RÚV6. september 2026 kl. 13:28
92 ára og keyrir um á rauðum blæjubíl

Rúnar Guðbrandsson er fyrsti viðmælandi Ragnhildar Steinunnar í þáttaröðinni Á gamans aldri á RÚV.Í þáttunum er skyggnst inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Ragnhildur Steinunn sagði frá þáttunum í Morgunútvarpinu á föstudaginn en þættirnir eru sex talsins. Í þáttunum fá áhorfendur meðal annars innsýn inn í líf bónda sem hefur mjólkað kýr hvað lengst allra Íslendinga, konu sem hefur búið í ferðatösku síðustu 15 ár og heimsmethafa í kraftlyftingum öldunga.„Það er gaman að keyra og taka niður blæjuna. Það gerir mann dálítið ungan,“ segir hinn 92 ára Rúnar Guðbrandsson sem rúntar um Reykjavík á rauðum blæjubíl.,,Við megum ekki gleyma því að aldur er auðvitað bara tala. Þetta eru sex viðmælendur og samanlagður aldur þeirra er 479 ár”, sagði Ragnhildur Steinunn í Morgunútvarpinu og þrátt fyrir að lífsaldur fyrsta viðmælandans, Rúnars, nálgist brátt heila öld þá er hann enn í fullu fjöri.Hann fer í sund daglega og gengur um hverfið til að rækta sál og líkama. Hann missti eiginkonu sína árið 2016 og í sorginni sem fylgdi ákvað hann að reyna lífga upp á hversdagsleikann með því að kaupa sér rauðan blæjubíl. Í dag finnur hann gleðina í því að að bjóða vinum og fjölskyldu á rúntinn með toppinn opinn og tónlistina í botni. Lífshlaup Rúnars er litað sorgum og sigrum en í sjónvarpsþáttunum Á gamans aldri deilir hann raunum sínum.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 6. september 2026 kl. 13:28

Tengdar fréttir