„Ég er ekki nógu ruglaður til þess að fá bolta í hausinn“

RÚV6. september 2026 kl. 14:04
„Ég er ekki nógu ruglaður til þess að fá bolta í hausinn“

Alex Unnar Hallgrímsson skoraði fjögur mörk fyrir Fram í sigri á Þór Akureyri í Olís deild karla í handbolta í gær, 38-34. Alex er bróðir Viktors Gísla Hallgrímssonar, landsliðsmarkvarðar í handbolta og stefnir sömu leið og stóri bróðir þó hann láti það vera að standa í markinu.Alex Unnar var einn af lykilmönnunum í U18-ára landsliðinu sem gerði vel á Evrópumeistaramótinu í sumar og varð í 5. sæti. Alex skoraði 35 mörk á mótinu og var valinn í úrvalsliðið.„Þegar aðstoðarþjálfarinn kom og sagði mér það ætlaði ég ekki að trúa því. Ég varð himinlifandi.“Er hraður og hoppar háttLíkt og margir æfði Alex margar íþróttir þegar hann var yngri en auk handboltans var hann bæði í fótbolta og körfubolta. Handboltinn varð þó á endanum fyrir valinu eftir að hann varð bikarmeistari í fjórða flokki eldri. Hann segir að margir félagar sínir hafi verið í handboltanum og það hafði sitt að segja.Alex spilar í vinstra horninu og hann segir það aldrei hafa komið til greina að verða markmaður eins og Viktor Gísli, eldri bróðir hans.„Ég er ekki nógu ruglaður til þess að fá bolta í hausinn. Mér líður best í horninu, ég er mjög hraður og hoppa líka mjög hátt.“Gunnlaugur Jónsson ræddi við Alex í íþróttafréttum á RÚV.Alex Unnar Hallgrímsson er upprennandi stjarna í handbolta sem bíður óþolinmóður eftir því að komast í atvinnumennsku. Hann hefur engan áhuga á að spila í markinu eins og stóri bróðir, Viktor Gísli Hallgrímsson, sem gefur litla bróður mörg góð ráð.Nánir bræðurAlex segir að þeir bræður séu mjög nánir og stöðugt að senda hvorum öðrum skilaboð. Þegar Alex er í landsliðsverkefnum gefur stóri bróðir honum góð ráð. Alex stefnir á að komast í A-landsliðið eins og Viktor Gísli og segir að það væri alger „draumur í dós“ ef þeir næðu landsleikjum saman.Og hann hefur fengið smjörþefinn af atvinnumennskunni því hann æfði með yngra liði Barcelona þegar hann heimsótti bróður sinn síðasta vetur.„Mamma vill ekki missa mig strax út í atvinnumennsku“„Mig langar mjög mikið út í atvinnumennsku. Það er draumurinn. Ég er ekki alveg nógu þolinmóður. Mig langar að fara út á næsta ári ef ég get en ég tek þessu bara hægt og rólega. Mamma vill ekki missa mig strax út í atvinnumennsku. Hún sér eftir því með Viktor.“Alex Unnar verður 18 ára í nóvember og eftir að hafa fengið að spila með meistaraflokki Fram síðasta vetur vonast hann eftir stærra hlutverki í ár. Hann er þó strax farinn að huga að framtíðinni og mögulegri atvinnumennsku.Aðrar myndir í meðfylgjandi sjónvarpsfrétt: Pablo Ferro og Ari Pacheco Steinunnarson.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 6. september 2026 kl. 14:04

Tengdar fréttir