„Erfitt að vera í kjaraviðræðum þegar óvissan er svona mikil“
Formaður Samtaka smærri útgerða segir mikla óvissu ríkja í kjaraviðræðum smábátasjómanna vegna áforma um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu.
Örvar Már Marteinsson, formaður Samtaka smærri útgerða, telur fullvíst að samningar náist í kjaraviðræðum smábátasjómanna, en þær hafa staðið yfir frá því í maí í fyrra. Slæmt hljóð er þó í útgerðarmönnum vegna áforma innviðaráðherra um breytingar á byggðakerfi fiskveiðistjórnunarkerfisins, þar á meðal hugsanlegs afnáms línuívilnunar. Örvar segir þessa óvissu gera samningagerð erfiða þar sem línuívilnun sé stór hluti af reiknilíkani hlutaskipta. Hann gagnrýnir jafnframt skort á fyrirsjáanleika við stjórn fiskveiða og segir vinnubrögð stjórnvalda vera vanvirðingu við stéttina.

