Mótorhjólaslys í Hafnarfirði

RÚV6. september 2026 kl. 20:22
Mótorhjólaslys í Hafnarfirði

Karlmaður slasaðist þegar hann missti stjórn á mótorhjóli sínu á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði á þriðja tímanum í dag. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var maðurinn með fulla meðvitund þegar að var komið en hlaut talsverða áverka. Þrír sjúkrabílar voru sendir á vettvang til að hlúa að hinum slasaða og flytja hann á slysadeild.

Heimild: RÚV
Birt á Fréttavakt: 6. september 2026 kl. 20:22

Tengdar fréttir