Stórhættuleg eftirför endaði með ákeyrslu á umferðareyju
mbl.is7. september 2026 kl. 02:46

Mikill erill var hjá lögreglu í dag þegar veita þurfti ökumanni á Hopp-deilibíl eftirför um götur Reykjavíkur. Eftirförin hófst í Lágmúla og lauk í Víðidal þegar ökumaðurinn missti stjórn á bílnum og ók upp á umferðareyju. Í ferðinni ók maðurinn á að minnsta kosti fjórar bifreiðar, þar á meðal tvo lögreglubíla, en fjöldi lögreglutækja tók þátt í að stöðva för hans.
Heimild: mbl.is
Birt á Fréttavakt: 7. september 2026 kl. 02:46

