Hannes og Össur takast á um þjóðaratkvæðagreiðsluna

Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, gagnrýnir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, harðlega vegna skrifa hans í kjölfar nýafstaðinnar þjóðaratkvæðagreiðslu. Hannes fullyrðir á samfélagsmiðlum að málflutningur Össurar sé gegnsær og tilraun til að rangtúlka niðurstöðurnar. Þessir fornu fjendur í íslenskri stjórnmálaumræðu halda því áfram að skylmast um stóru málin.