Miklar truflanir á flugumferð vegna eldgoss
RÚV7. september 2026 kl. 08:40
Millilandaflugvöllurinn í Djakarta, höfuðborg Indónesíu, verður lokaður að minnsta kosti til klukkan sex síðdegis að staðartíma vegna eldgoss í fjallinu Anaka Krakatá. Lokunin hefur einnig áhrif á minnst sex aðra flugvelli í landinu. Þúsundir farþega sitja fastir vegna þessa og hvetja flugmálayfirvöld fólk til að fylgjast náið með þróun mála.
Heimild: RÚV
Birt á Fréttavakt: 7. september 2026 kl. 08:40



