Frumvarp til fjárlaga 2027 kynnt í dag: Stefnt að afgangi
RÚV7. september 2026 kl. 11:22
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 á blaðamannafundi í dag. Ríkisstjórnin stefnir að hallalausum fjárlögum og er gert ráð fyrir að ríkissjóður skili nokkurra milljarða króna afgangi. Ráðherra segir að þetta sé í takt við fjármálaáætlun, þar sem gert var ráð fyrir að hallerekstri ríkissjóðs lyki á þessum tíma. Alþingi verður sett á morgun og er þetta frumvarp eitt af stærri verkefnum þingsins á komandi misserum.
Heimild: RÚV
Birt á Fréttavakt: 7. september 2026 kl. 11:22