Eldgos í Anaka Krakatá veldur truflunum á flugi í Indónesíu
RÚV7. september 2026 kl. 11:58
Flugmálayfirvöld í Indónesíu hafa neyðst til að loka alþjóðaflugvellinum í Djakarta og sex öðrum flugvöllum vegna eldgoss í eldfjallinu Anaka Krakatá. Gosinu fylgir mikil aska sem ógnar flugöryggi á svæðinu. Þúsundir farþega eru strandaglópar vegna lokananna og hefur fólk verið beðið um að fylgjast náið með tilkynningum. Búist er við að flugvellirnir verði lokaðir fram á kvöld að minnsta kosti en framvinda gossins ræður þar miklu um.
Heimild: RÚV
Birt á Fréttavakt: 7. september 2026 kl. 11:58