Ellefu drepnir í árásum Ísraels á Suður-Líbanon

RÚV7. september 2026 kl. 12:46

Að minnsta kosti ellefu manns, þar á meðal tvö börn, féllu í loftárásum Ísraelshers á Suður-Líbanon síðastliðinn sólarhring. Líbanskir fjölmiðlar greina frá því að níu fórnarlambanna hafi verið í sama íbúðarhúsinu í Kfar Rumman sem varð fyrir sprengjuárás án fyrirvara. Ísraelsk yfirvöld segja árásirnar beinast gegn innviðum Hezbollah-skæruliða sem hafi haldið úti stöðugum drónaárásum á Ísrael.

Heimild: RÚV
Birt á Fréttavakt: 7. september 2026 kl. 12:46

Tengdar fréttir