Þýskaland hafnar ásökunum um stuðning við þjóðarmorð

RÚV7. september 2026 kl. 13:04

Lögmenn þýska ríkisins fluttu mál sitt fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag í dag og kröfðust þess að máli Níkaragva gegn landinu yrði vísað frá. Níkaragva sakar Þýskaland um að greiða fyrir þjóðarmorði á Gaza með vopnasölu til Ísraels. Þjóðverjar segja ásakanirnar úr lausu lofti gripnar og að öll vopnaviðskipti séu í ströngu samræmi við alþjóðalög, auk þess sem landið veiti verulega mannúðaraðstoð á svæðinu.

Heimild: RÚV
Birt á Fréttavakt: 7. september 2026 kl. 13:04

Tengdar fréttir