Sérsveitin kölluð út vegna gruns um frelsissviptingu á Akureyri
RÚV7. september 2026 kl. 14:46
Lögreglan á Norðurlandi eystra handtók tvo menn á Akureyri síðastliðinn föstudag í tengslum við rannsókn á frelsissviptingu og hótunum. Aðgerðirnar fóru fram á tveimur stöðum í bænum og naut lögregla aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum og húsleit, þar sem ekki var talið að þeir gætu spillt rannsókn málsins eða ógnað almenningi. Lögregla varst allra frekari frétta af gangi rannsóknarinnar að svo stöddu en málið er komið í hefðbundið ferli.
Heimild:
Birt á Fréttavakt: 7. september 2026 kl. 14:46