ESB eflir fjárfestingar á Grænlandi og veðjar á fjarskipti
Evrópusambandið hyggst auka fjárfestingar sínar á Grænlandi um 200 milljónir evra, sem samsvarar um 28 milljörðum króna, á næstu tveimur árum. Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, kynnti þetta á blaðamannafundi í Nuuk. Samtals munu fjárfestingar sambandsins nema 400 milljónum evra á tímabilinu. Áhersla er lögð á þrjá lykilflokka: hreina orku, öflun mikilvægra málma og uppbyggingu fjarskipta. Nýr samningur milli ESB, Grænlands og Danmerkur gerir ráð fyrir níu milljóna evra fjárfestingu í gervihnattasambandi til að bæta netkerfi í afskekktum byggðum á Norður- og Austur-Grænlandi. Von der Leyen lagði jafnframt áherslu á að framtíð Grænlands eigi að vera í höndum íbúanna sjálfra og Dana, og vísaði þar til aukins áhuga Bandaríkjanna á landinu.