Hver drap Spacestation?
RÚV7. september 2026 kl. 16:36
Hljómsveitin Spacestation var stofnuð fyrir fimm árum í kjallara í Reykjavík og hefur síðan þá vakið athygli fyrir sitt kröftuga og sækadelíska indie-rokk. Áhrifin eru sótt í sveitir eins og Sonic Youth, Velvet Underground og þýskt krautrokk, þótt melódískari hliðar minni á The Strokes. Nýja platan þeirra, „Who Killed Spacestation?“, segir sögu af endalokum og nýju upphafi sveitarinnar. Ólíkt fyrri verkum var platan skrifuð og hljóðrituð á stuttu og afmörkuðu tímabili í samstarfi við Arnar Guðjónsson, sem gaf sveitinni færi á að þróa nýjan hljóðheim.
Heimild:
Birt á Fréttavakt: 7. september 2026 kl. 16:36

