Þúsundir fylgdu stríðsglæpamanninum Ratko Mladić til grafar

RÚV7. september 2026 kl. 23:21
Þúsundir fylgdu stríðsglæpamanninum Ratko Mladić til grafar

Mikill fjöldi fólks kom saman í Belgrad í dag til að votta Ratko Mladić hinstu kveðju, en hann var dæmdur fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi í borgarastyrjöldinni í Júgóslavíu. Mladić lést í fangelsi í Hollandi þar sem hann afplánaði lífstíðardóm. Útförin hefur vakið mikla reiði og áhyggjur á alþjóðavettvangi, en forseti ríkisráðs Bosníu og Hersegóvínu segir það hryggilegt að ráðamenn í Serbíu heiðri einn versta morðingja Evrópusögunnar. Evrópusambandið heuv einnig fordæmt dýrðarljómann sem slegið er á Mladić og segir hann ganga gegn grunngildum sambandsins.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 7. september 2026 kl. 23:21

Tengdar fréttir