Söngleikjamyndin Hvar er draumurinn? á toppnum
RÚV8. september 2026 kl. 00:12
Söngleikjamyndin Hvar er draumurinn? var vinsælasta kvikmyndin í íslenskum kvikmyndahúsum um helgina. Myndin fór rakleiðis í efsta sæti aðsóknarlistans og skákaði þar með nýjustu Köngulóarmannsmyndinni, sem hafði setið á toppnum í sex vikur. Alls sáu 3.069 manns myndina um helgina, sem er stærsta opnun íslenskrar myndar á árinu. Myndin er byggð á tónlist Sálarinnar hans Jóns míns og fjallar um ástir og örlög ungs fólks í Reykjavík snemma á tíunda áratugnum. Höskuldur Þór Jónsson leikstýrði myndinni, sem var frumsýnd á dögunum.
Heimild:
Birt á Fréttavakt: 8. september 2026 kl. 00:12
