Rólegheitaveður víðast hvar
RÚV8. september 2026 kl. 07:15
<p>Norðlendingar geta búist við allt að 18 stiga hita í dag. Bjartviðri verður um land allt en það þykknar upp á Suðvestur- og Vesturlandi með kvöldinu. Á morgun byrjar að rigna vestantil.</p><p>Veðurspáin er svohljóðandi:</p><p>Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt í dag og bjartviðri, en strekkingur um landið norðvestanvert seinnipartinn. Þykknar upp vestantil í kvöld.</p><p>Dálítil væta um landið vestanvert á morgun, annars svipað veður. Víða rigning sunnan- og vestantil annað kvöld. Hiti 9 til 18 stig yfir daginn, hlýjast norðanlands.</p>
Heimild:
Birt á Fréttavakt: 8. september 2026 kl. 07:15