Kort Trumps: Grænlendinga sjálfra að ákveða framtíð sína

Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur segir heimsbyggðina alla og Bandaríkjamenn ekki síst þurfa að skilja að það sé Grænlendinga sjálfra að ákveða örlög sín og framtíð.

Fredriksen ítrekaði þetta í gær eftir að sjá mátti Grænland þakið bandarísku fánalitunum á korti sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðlinum Truth Social Litirnir féllu einnig yfir Mið-Ameríku, Kanada og Ísland.

Mette Frederiksen var stödd á Grænlandi og sagði í samtali við danska ríkisútvarpið að heimastjórnin og Grænlendingar sjálfir hefðu ítrekað aftekið að gerast Bandaríkjamenn. Enginn skyldi velkjast í vafa um það, hvorki Bandaríkjamenn né aðrir.

Frederiksen klykkti loks út með að árétta að Grænland væri alls ekki til sölu. Í gær var gerður samningur milli Danmerkur, Grænlands og Evrópusambandsins um fjárfestingar sambandsins á Grænlandi að jafnvirði 56 milljarða íslenskra króna.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði Billy Long sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund í gær og tjáði honum að færsla Trumps væri allsendis óviðeigandi.