Stjórnarliðar kynna áherslur sínar fyrir þingveturinn
RÚV8. september 2026 kl. 09:13
Formenn stjórnarflokkanna, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, kynna í dag helstu þingmál ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þingvetur. Á fundinum verður farið yfir hvaða lagafrumvörp og þingsályktanir er að vænta frá ráðherrum á næstu mánuðum. Fundurinn, sem hófst klukkan níu, er liður í upptaktsviðburðum fyrir þingsetningu sem fer fram síðdegis í dag.
Heimild:
Birt á Fréttavakt: 8. september 2026 kl. 09:13