Thelma Björg hársbreidd frá úrslitum á EM

RÚV8. september 2026 kl. 10:30
Thelma Björg hársbreidd frá úrslitum á EM

Thelma Björg Björnsdóttir hafnaði í 9. sæti í 100 metra skriðsundi á Evrópumóti fatlaðra í sundi í Tyrklandi í morgun. Hún var aðeins hársbreidd frá því að komast í úrslit, en hún synti á tímanum 1:32,42. Thelma er fyrsti varamaður inn í úrslitin í kvöld. Fleiri íslenskir keppendur, þau Sonja Sigurðardóttir og Róbert Ísak Jónsson, hefja leik á mótinu á morgun.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 8. september 2026 kl. 10:30

Tengdar fréttir