Konunum sagt að halda sig til hlés við heimsókn trúarleiðtoga í Eiffelturninn

RÚV8. september 2026 kl. 12:22
Konunum sagt að halda sig til hlés við heimsókn trúarleiðtoga í Eiffelturninn

Konur sem starfa í Eiffelturninum í París voru beðnar um að halda sig til hlés og í sumum tilfellum voru karlmenn fengnir í þeirra stað á laugardaginn síðasta. Þetta gerðist þegar Mahant Swami Maharaj, leiðtogi hindúatrúarfélagsins Bochasanwasi Akshar Purushottam Swaminarayan Sanstha, heimsótti turninn. Stjórnendur turnsins urðu við beiðni trúarfélagsins um að takmarka samneyti leiðtogans við konur. Ákvörðunin hefur mætt harðri gagnrýni frá starfsfólki og stjórnmálamönnum, þar á meðal jafnréttisráðherra Frakklands. Stjórnendur Eiffelturnsins hafa beðist afsökunar á mistökunum.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 8. september 2026 kl. 12:22

Tengdar fréttir