Viðhaldi við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum frestað fram á vor
RÚV Innlent8. september 2026 kl. 12:38
Vinna við viðhald á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum hefur verið slegið á frest fram á næsta vor vegna óhagstæðrar veðráttu. Upphaflega stóð til að ljúka málningarvinnu og öðru viðhaldi í þessum mánuði, sem hefði haft verulegar umferðartafir í för með sér. Vegna rigninga hefur vinnan tafist og þótti heillavænlegra að fresta henni. Ekki verða því frekari tafir á umferð um brúna af þessum sökum þetta haustið.
Heimild:
Birt á Fréttavakt: 8. september 2026 kl. 12:38
