Ísland meðal tólf þjóða sem fordæma landtökubyggðir Ísraels
Heimildin8. september 2026 kl. 16:59
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur skrifað undir samyfirlýsingu tólf utanríkisráðherra þar sem lýst er þungum áhyggjum af ólöglegum landtökubyggðum Ísraela í Palestínu. Í yfirlýsingunni segir að aðgerðir Ísraelsstjórnar á Vesturbakkanum grafi undan möguleikanum á tveggja ríkja lausn. Þjóðirnar tólf heita því að grípa til aðgerða, svo sem viðskiptaþvingana, til að stuðla að réttlátum og varanlegum friði á svæðinu þar sem ofbeldi landnema fer vaxandi.
Heimild:
Birt á Fréttavakt: 8. september 2026 kl. 16:59
