Þessi mál setur ríkisstjórnin í forgang
Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir komandi löggjafarþing eru 159 mál. Flest málin koma frá fjármála- og efnahagsráðherra, alls 26 talsins, en forsætisráðherra og utanríkisráðherra leggja fram fæst mál, sjö hvor. Meðal helstu áherslumála eru sanngirnisbætur fyrir þolendur ofbeldis á vegum hins opinbera, innleiðing náttúru- og innviðagjalds, heildarendurskoðun hvalveiðilaga og staðfesting á bókun 35 vegna EES-samningsins. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðar frumvarp um sanngirnisbætur í nóvember og einföldun regluverks eftir áramót. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra kynnir mál tengd auðlindagjaldi og dýravelferð, en Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra leggur áherslu á baráttu gegn skipulagðri brotastarfsemi og sameiningu lögregluembætta.