„Ekkert fyndið eða eðlilegt að gera grín að fullveldi ríkja“
RÚV8. september 2026 kl. 23:43
Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja afbakað landakort Donalds Trumps Bandaríkjaforseta vera „lélegt grín sem þó ber að taka alvarlega“. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kallaði sendiherra Bandaríkjanna á sinn fund vegna myndar sem Trump birti á Truth Social, þar sem Ísland, Grænland og Kanada voru þakin bandarísku fánalitunum. Ráðherra lagði áherslu á að Ísland væri fullvalda ríki. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kallaði birtinguna móðgun og sagði ekkert fyndið við að gera grín að fullveldi ríkja. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, tók í sama streng og áréttaði að Grænland væri ekki til sölu.
Heimild:
Birt á Fréttavakt: 8. september 2026 kl. 23:43
