Haraldur Noregskonungur jarðsunginn í Ósló í dag
Haraldur Noregskonungur verður jarðsunginn frá dómkirkjunni í Ósló í dag að viðstöddum fjölmörgum þjóðhöfðingjum og fulltrúum konungsfjölskyldna víðs vegar úr Evrópu. Meðal gesta eru Vilhjálmur Bretaprins, konungsfjölskyldur Norðurlandanna og spænsku konungshjónin, auk ráðamanna frá Finnlandi, Þýskalandi, Úkraínu, Frakklandi og Taílandi.
Athöfnin hefst á hádegi að staðartíma, eða klukkan tíu að íslenskum tíma, þegar kista konungsins verður flutt á fallbyssuvagni frá konungshöllinni til dómkirkjunnar. Hákon konungur og aðrir þjóðhöfðingjar munu ganga á eftir kistunni, en Sonja drottning og Mette-Marit drottning fylgja í bíl.
Öryggisgæsla er gríðarleg, en um 3.000 lögreglumenn og 3.500 hermenn standa vörð. Að athöfninni lokinni verða fánar dregnir í fulla stöng og kirkjuklukkum hringt til að hylla nýjan konung.

