Fagnar fyrirhuguðum breytingum á leigumarkaði
RÚV9. september 2026 kl. 11:25
Formaður Leigjendasamtakanna lýsir yfir mikilli ánægju með nýtt frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra sem kveður á um reglulegar breytingar á leigufjárhæð í stað mánaðarlegra vísitöluhækkana. Verði frumvarpið að lögum verður óheimilt að tengja leigusamninga við mánaðarlega vísitölu, sem Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður samtakanna, segir að sé einsdæmi á heimsvísu. Hann telur þetta mikilvægt skref í að bæta réttarstöðu þeirra 30% Íslendinga sem eru á leigumarkaði og benda útreikningar samtakanna til þess að svona breyting geti haft veruleg áhrif til lækkunar á verðbólgu, enda vegi sjálfvirkar hækkanir á reiknaðri húsaleigu þungt í mælingum.
Heimild:
Birt á Fréttavakt: 9. september 2026 kl. 11:25