Aðalmeðferð seinkaði því vitnið rataði ekki í héraðsdóm
RÚV9. september 2026 kl. 14:24
Annar dagur aðalmeðferðar í hinu svokallaða Höfðatorgsmáli hófst með seinkun í morgun þegar lykilvitni rataði ekki á réttan stað. Vitnið mætti á Hlemm í stað þess að fara til Héraðsdóms Reykjavíkur við Lækjagötu. Eftir að túlkur og lögregla höfðu leiðbeint manninum mætti hann hálftíma of seint í dómsal. Í málinu eru þrír menn ákærðir fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara Höfðatorgs í mars sl. Vitnið lýsti yfir miklum ótta við hendingarnar en mundi lítið eftir atvikunum sjálfum vegna lyfjanotkunar.
Heimild:
Birt á Fréttavakt: 9. september 2026 kl. 14:24

