Telur rangt að handvalinn hópur nemenda taki PISA-prófið erlendis
Helga Birgisdóttir lektor segir fullyrðingar um að úrvalsbörn séu valin til að taka PISA-prófið í öðrum löndum vera algjöran misskilning.
Helga Birgisdóttir, lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, vísar því á bug að erlend ríki handvelji nemendur í PISA-könnunina til að fegra niðurstöður sínar. Hún segir að þátttökuhlutfallið á Íslandi sé einfaldlega hærra vegna smæðar þjóðarinnar, en úrtakið sé valið með vísindalegum aðferðum í öllum löndum til að gefa sem réttasta mynd af nemendahópnum í heild. Því sé ekki um neina skekkju að ræða í samanburði milli landa þótt hlutfallið sé mismunandi.