Segja sakborning hafa haft sætaskipti í Land Rovernum

Öðrum degi aðalmeðferðar í Höfðatorgsmálinu er lokið en þar eru þrír menn sakaðir um tilraun til manndráps í bílakjallara. Vitni gáfu skýrslu.

RÚV9. september 2026 kl. 21:50
Segja sakborning hafa haft sætaskipti í Land Rovernum
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Öðrum degi aðalmeðferðar í svokölluðu Höfðatorgsmáli lauk síðdegis í dag. Í málinu eru þrír menn ákærðir fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara í Reykjavík í mars síðastliðnum. Í dag komu fjölmörg vitni fyrir dóm, þar á meðan lögreglumenn sem stýrðu rannsókninni og aðrir sem áttu leið um bílakjallarann þetta kvöld. Fram kom í máli vitna að sakborningur hefði verið í bílstjórasæti Land Rover bifreiðarinnar en mögulega skipt um sæti stuttu síðar. Upptökur úr bílakjallaranum voru sýndar ítrekað en þær náðu þó ekki öllu sem fram fór. Lögreglumenn lýstu vettvangi þar sem brotaþoli lá í blóðpolli eftir árásina. Aðalmeðferð málsins heldur áfram á morgun.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 9. september 2026 kl. 21:50
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir