Ísrael svarar refsiaðgerðum Breta af hörku

Samband Ísraels og Bretlands hefur ekki verið verra í áratugi eftir að bresk stjórnvöld kynntu refsiaðgerðir vegna aðgerða landtökumanna.

RÚV9. september 2026 kl. 22:38
Ísrael svarar refsiaðgerðum Breta af hörku
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Stjórnvöld í Ísrael hafa kynnt aðgerðir gegn Bretum eftir að bresk stjórnvöld tilkynntu refsiaðgerðir gegn Ísrael í gær og sökuðu landtökufólk um þjóðernishreinsanir á Palestínumönnum. Samband ríkjanna hefur ekki verið verra í áratugi.

Ísraelsk stjórnvöld voru ekki lengi að svara fyrir sig, utanríkisráðherrann Gideon Saar kynnti mótvægisaðgerðir strax í gær. Þau ætla meðal annars að loka ræðismannsskrifstofu Breta í Jerúsalem og vísa breskum fulltrúum á brott úr stuðningsmiðstöð fyrir Gaza sem staðsett er í suðurhluta Ísraels.

Tekist var á um refsiaðgerðirnar gegn Ísrael á breska þinginu í dag og Andy Burnham forsætisráðherra kom þeim til varnar. „Tal frá hvaða stjórnmálamanni sem er um tveggja ríkja lausn er innantómt ef ekki fylgja því aðgerðir,“ sagði hann.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 9. september 2026 kl. 22:38
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir