Ný Fríhöfn opnuð: Telja birgja sátta og verðin samkeppnishæf

Forsvarsmenn Heinemann telja íslenska birgja ánægða með nýju fríhöfnina á Keflavíkurflugvelli og segja áfengisverð samkeppnishæft.

Vísir9. september 2026 kl. 22:48
Ný Fríhöfn opnuð: Telja birgja sátta og verðin samkeppnishæf
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Forsvarsmenn Heinemann sem opnuðu nýja og endurbætta fríhöfn á Keflavíkurflugvelli í dag segjast telja íslenska birgja sem selja vörur sínar í fríhöfninni vera sátta, þeir hafi lært margt síðan þeir tóku yfir rekstur fríhafnarinnar á síðasta ári. Þá segja þeir áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft þó ekki sé hægt að fullyrða að allar vörur séu ódýrari en í fríhöfnum í Kaupmannahöfn og í Frankfurt.

Nýja verslunin er mun stærri og býður upp á fjölbreyttara úrval en áður. Sérstök áhersla hefur verið lögð á íslenska hönnun og framleiðslu í nýja skipulaginu, sem virðist mælast vel fyrir hjá bæði birgjum og viðskiptavinum.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 9. september 2026 kl. 22:48
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir