Landlæknir kannar aðstæður hjá SÁÁ
Landlæknir hefur hafið athugun á faglegri stöðu og öryggi sjúklinga hjá SÁÁ eftir uppsagnir lykilstjórnenda.
María Heimisdóttir landlæknir segir að öryggi sjúklinga og gæði þjónustunnar verði ávallt að vera í fyrirrúmi hjá SÁÁ. Embættið hefur þegar fundað með stjórnendum eftir að framkvæmdastjóri lækninga og forstjóri sögðu upp störfum vegna afskipta stjórnar af faglegu starfi. María leggur áherslu á að ef rekstrarformið trufli öryggi sjúklinga þurfi að endurskoða það.

