Sigmundur Davíð: „Þjóðin var plötuð“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega á Alþingi og sagði loforð forsætisráðherra vera blekkingar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, dró ekki dul á óánægju sína með störf ríkisstjórnarinnar í ræðu á Alþingi. Hann vísaði til orða Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra um efnd loforða og fullyrti að raunin væri allt önnur. Sigmundur sagði ástandið alvarlegt og að kjósendur hefðu verið blekktir fyrir kosningar.

