Ída Marín skoraði þrennu í fyrsta leik sínum í Svíþjóð
Ída Marín Hermannsdóttir skoraði þrennu í fyrsta byrjunarliðsleik sýnum fyrir Hammarby í sænsku bikarkeppninni í kvöld.
Ída Marín Hermannsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, stimplaði sig rækilega inn hjá sænska liðinu Hammarby í kvöld með því að skora þrennu í sínum fyrsta byrjunarliðsleik. Liðið vann 5-0 sigur á Gamla Uppsala í sænsku bikarkeppninni. Ída gekk nýverið til liðs við Hammarby frá FH, þar sem hún hafði farið á kostum í Bestu deildinni í sumar. Þessi frábæra byrjun lofar góðu fyrir framhaldið hjá landsliðskonunni í Svíþjóð.



