Heitt vatn á að vera komið á alls staðar um miðnætti
HS Veitur gera ráð fyrir að allir íbúar á Suðurnesjum verði komnir með heitt vatn með eðlilegum þrýstingi um miðnætti í kvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá Sigrúnu Ingu Ævarsdóttur, upplýsingafulltrúa HS Veitna, munu allir íbúar á Suðurnesjum líklega vera komnir með heitt vatn á ný fyrir miðnætti. Lokað var fyrir vatnið fyrr í dag vegna framkvæmda á stofnæð hitaveitu við Njarðarbraut og dælustöð á Fitjum. Jafnvægi er þegar komið á vatnið í flestum hlutum Reykjanesbæjar og streymi er hafið til Voga og Suðurnesjabæjar.

