Bæta þarf stuðning við börn með erlendan bakgrunn
Nýjar PISA-niðurstöður sýna að börn með erlendan bakgrunn standa höllum fæti í lesskilningi og félagslegri vellíðan í íslenskum skólum.
Sérfræðingar hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu leggja áherslu á að tekið sé betur utan um börn með erlendan bakgrunn, bæði námslega og félagslega. Aðeins 28 prósent þessa hóps búa yfir grunnfærni í lesskilningi, samanborið við 68 prósent barna án erlends bakgrunns. Fríða Bjarney Jónsdóttir, samhæfingastjóri hjá MMS, segir ábyrgðina vera samfélagslega og að þörf sé á skýrri framtíðarsýn og auknu fjármagni til að mæta þörfum þessa stækkandi hóps.

