Eldri borgarar telja loforð svikin
Samtök eldri borgara gagnrýna ríkisstjórnina harðlega fyrir að standa ekki við gefin loforð um bætta afkomu og breytingar á kjaramálum hópsins.

Forystumenn eldri borgara segja þolinmæðina á þrotum. Í nýrri ályktun kemur fram að loforð sem gefin voru í aðdraganda síðustu kosninga hafi að mestu verið svikin. Þeir benda á að verðbólga hafi étið upp þær hækkanir sem hafi verið gerðar og að staða margra í hópnum sé verri en áður. Skorað er á stjórnvöld að grípa til tafarlausra aðgerða til að tryggja að allir geti lifað af lífeyri sínum með reisn.


