Erfiður þingvetur framundan – Inga Sæland drottning ríkisstjórnarinnar
Ásthildur Sturludóttir og Eyrún Magnúsdóttir ræða stefnuræðu forsætisráðherra og komandi þingvetur, þar sem Inga Sæland virðist í lykilhlutverki.
„Ég held að þetta verði mjög erfiður vetur fyrir ríkisstjórnarflokkana og þær augljóslega ætla ekki að gefa neitt eftir. Það var allavega ekki verið að rétta fram neina sáttarhönd af einhverju viti,“ segir Ásthildur Sturludóttir, stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur. Forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína í kvöld og voru viðbrögð þingmanna margvísleg. Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Gímaldsins, bendir á að ræða forsætisráðherra hafi að miklu leyti verið upptalning á afrekum Ingu Sæland, barna- og menntamálaráðherra, sem virðist vera „drottning“ þessarar ríkisstjórnar. Efnahagsástandið og erfið mál eins og fjárlög munu lita veturinn, auk þess sem gneistar hafa flogið á milli stjórnarandstöðuflokka.



