Versnandi fjárhagsstaða Seltjarnarnesbæjar vekur áhyggjur
Minnihluti bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar lýsir yfir þungum áhyggjum af alvarlegri fjárhagsstöðu bæjarins eftir kynningu á hálfsársuppgjöri.

Minnihluti Samfylkingarinnar, Viðreisnar og óháðra í Seltjarnarnesbæ lýsti í dag yfir miklum áhyggjum af fjárhag bæjarins. Uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins var kynnt á bæjarstjórnarfundi og sýnir það, að sögn minnihlutans, alvarlega og versnandi stöðu. Í bókun minnihlutans kemur fram að aðgerða sé þörf til að bregðast við þessari þróun en fjárhagslegt svigrúm bæjarins virðist fara minnkandi.


