Fyrrum kennari á Vesturlandi meðal tekjuhæstu manna landsins
Jóhanna Halldóra Sigurðardóttir, skógræktarbóndi og fyrrum skólastjóri, komst á blað sem ein af tekjuhæstu einstaklingum landsins með yfir 300 milljónir í árstekjur.
„Þetta kemur mér verulega á óvart,“ segir Jóhanna Halldóra Sigurðardóttir, skógræktar- og ferðaþjónustubóndi á Dröngum, þegar hún frétti að hún væri þriðji tekjuhæsti einstaklingurinn á Vesturlandi. Jóhanna, sem er fyrrverandi kennari og skólastjóri, er með heildarárstekjur upp á rúmar 329 milljónir króna, sem skipar henni í 95. sæti á landsvísu. Hún segist hafa haldið vel utan um sitt en tekjurnar má rekja til sölu á eignum og öðrum fjárfestingum.

