Tveir fórust í sprengingu í vatnsaflsvirkjun
Tveir starfsmenn vatnsaflsvirkjunar í Sviss létust í öflugri sprengingu eftir að eldur kviknaði í byggingunni í Piotta-þorpinu.

Tveir fórust í sprengingu í vatnsaflsvirkjun í Sviss í dag, að sögn lögregluyfirvalda. Sprengingin varð í vatnsaflsvirkjun í þorpinu Piotta í suðurhluta landsins þegar eldur kviknaði. Mennirnir, sem voru starfsmenn virkjunarinnar, létust af sárum sínum. Annar þeirra er 55 ára svissneskur og hinn maðurinn 18 ára, einnig svissneskur, að sögn lögreglu. Sprengingin olli miklum skemmdum á byggingunni. Orsök slyssins og nákvæmar aðstæður eru í rannsókn en slysið er rannsakað sem alvarlegt vinnuslys.



