Pakistanar vara Írana við Hútum
Stjórnvöld í Pakistan hafa lagt hart að klerkastjórninni í Íran að hemja uppreisnarmenn Húta eftir umfangsmiklar árásir þeirra.

Erindrekar frá Pakistan komu í dag viðvörun á framfæri við ráðamenn í Íran. Klerkastjórnin var beðin um að koma böndum á Húta eftir umfangsmiklar árásir þeirra á Sádi-Arabíu, ellegar væri hætta á því að átök á svæðinu gætu stigmagnast verulega. Staðan í Miðausturlöndum er spennuþrungin og telja Pakistanar nauðsynlegt að draga úr herskáum aðgerðum til að forðast allsherjarstríð í heimshlutanum.


