Skálafell: Mistök að hætta við uppbyggingu
Fulltrúi í samstarfsnefnd skíðasvæða telur það stór mistök að opna ekki Skálafell aftur, en svæðið hefur verið lokað í fjögur ár.
Valdimar Breiðfjörð Birgisson, fulltrúi Mosfellsbæjar í samstarfsnefnd skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, gagnrýnir harðlega hugmyndir um að hætta frekari uppbyggingu á skíðasvæðinu í Skálafelli. Svæðið hefur verið lokað í fjögur ár og hefur kostnaður við enduropnun verið áætlaður fimm til sex milljarðar króna. Valdimar dregur þær tölur í efa og segir þær mögulega notaðar sem tylliástæðu til að gera ekkert. Hann bendir á að Skálafell bjóði upp á lengri og fjölbreyttari brekkur en Bláfjöll og að veðraðstæður séu þar oft betri þegar hvasst er annars staðar. Hann hvetur ráðamenn til að forgangsraða í þágu fjölskylduíþrótta og tryggja opnun svæðisins sem fyrst.