Mannskaðaslys í svissneskri vatnsaflsvirkjun
Tveir létust í alvarlegu vinnuslysi eftir að sprenging varð í vatnsaflsvirkjun í suðurhluta Sviss í dag.
Yfirvöld í Sviss greindu frá því í dag að tveir hafi látið lífið í alvarlegri sprengingu sem varð í vatnsaflsvirkjun í suðurhluta landsins. Um er að ræða alvarlegt vinnuslys sem átti sér stað í héraðinu Ticino. Lögregla og sjúkralið voru kölluð á vettvang en ekki var hægt að bjarga mönnunum tveimur. Rannsókn á tildrögum slyssins er hafin en ekki hefur verið greint frá því hvað olli sprengingunni að svo stöddu.



