Skattakóngur Skagafjarðar hvetur til fjárfestinga í nærsamfélaginu
Gunnar Þór Gestsson, stofnandi Kappa, er tekjuhæsti Skagfirðingur ársins eftir sölu á fyrirtæki sínu til Origo.
Gunnar Þór Gestsson, stofnandi hugbúnaðarráðgjafarfyrirtækisins Kappa, trónir á toppi hálunatekjulista í Skagafirði þetta árið. Gunnar, sem er í 48. sæti á landsvísu, var með tæpar 457 milljónir króna í árstekjur og greiddi um 95 milljónir í fjármagnstekjuskatt. Tekjurnar koma til vegna sölu á fyrirtækinu Kappa til Origo síðastliðið haust. Gunnar hefur lýst því yfir að hann vilji sjá meira af slíkum fjármunum renna aftur til uppbyggingar í nærsamfélaginu í Skagafirði, en Kappa sérhæfir sig í Microsoft Business Central lausnum.


